Forsíða FLE

Fréttir og greinar
05. júní 2009

Skattaparadísum fækkar
Skattaparadísum fer fækkandi á svarta lista OECD með því að Costa Rica, Malasía, Filippseyjar og Uruguay hafa gengið til samvinnu við OECD um gegnsæi í fjármálaheiminum. Þessi fjögur lönd voru sett á svarta listann vegna þess að þau höfðu ekki skuldbundið sig til þess að bæta úr málum heima fyrir, en nú liggur fyrir að þau samþykkja að vinna gegn skattamisferli og ælta á þessu ári að breyta lögum í þá átt að létta leyndinni sem nú er til staðar.  Í framhaldi af því færðust þau yfir á gráa listann (sem er auðvitað miklu betri listi) og eru þar í hópi 38 annarra landa sem að sögn OECD eiga eftir að ljúka sínu betrunarferli.  Til þess að lesa meira um þetta má t.d. fara á www.oecd.org og skoða undir "finance" . 
Til baka

Leita


Finndu það sem þú leitar að á FLE.is








Félag löggiltra endurskoðenda - FLE Suðurlandsbraut 6 108 Reykjavík Sími: 568 8118 Fax: 568 8139 Tölvupóstfang: fle@fle.is