FEE (Federation of European Accountants) birtir í dag nýja staðla frá IASB (The International Accounting Standards Board) fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Staðallinn gengur undir heitinu: IFRS for SMEs. Staðlarnir hafa verið í þróun lengi og þeim er ætlað að einfalda lífið fyrir þá sem að fjárhagsuppgjöri koma - því öllum leiðbeiningum hefur verið safnað saman í þennan eina staðal. Félagar geta nálgast staðalinn á innri vef FLE eða á vefsíðu IASB.