10. júlí 2009
Í tillögum endurskoðendaráðs, sem sendar voru ráðuneytinu með bréfi dags. 29. júní sl., er miðað við að próftökugjald skv. eldra kerfi verði 60.000 kr. fyrir hvert próf (samt. fjögur) og að próftökugjald skv. nýja kerfinu verði 180.000 kr. fyrir eitt próf. Tillögur endurskoðendaráðs miðast við að próftökugjaldið standi undir kostnaði við prófin.
Með hliðsjón af tillögum endurskoðendaráðs hefur ráðuneytið ákveðið að próftökugjald sbr. 5. gr. laga nr. 79/2008, um endurskoðendur, verði eftirfarandi:
- Fyrir próf skv. eldra kerfi: 60.000 kr. fyrir hvert próf.
- Fyrir próf skv. nýja kerfinu: 180.000 kr. fyrir prófið.