Forsíða FLE

Fréttir og greinar
22. júlí 2009

Ágúst verður golfmánuður FLE

Ágúst mánuður verður golfmánuður FLE.  Dagsetningarnar eru :   
 
Fimmtudaginn  6. ágúst er keppt við lögmenn á golfvellinum  Akranesi, kl. 13.30.
Þriðjudaginn 18. ágúst er keppni við tannlækna.  Staður og stund ( eftir hádegi ) auglýst þegar nær dregur.
Fimmtudaginn 27. ágúst verður meistaramót FLE haldið í 28. skipti í samfelldri röð og hefst á Grafarholtsvelli kl. 13.10.  

Það er brýnt fyrir golfurum í FLE að setja þessar dagsetningar inn í dagskrá sína og láta ekki vinnuna trufla.
 
Keppni okkar við lögmenn og tannlækna er fjórbolti - betri bolti . Þess vegna er endilega mælst til þess að þeir endurskoðendur sem spila mikið saman tilkynni þátttöku sem lið   -  en auðvitað fá þeir annan liðsmann ef aðeins annar af tveim getur mætt.   Í keppni við lögmenn og tannlækna er keppt um farandbikar sem sómir sér vel á verðlaunahillunni í félagsheimili FLE.   -  ÁFRAM FLE.
 
Meistaramót FLE.  Við ætlum að reyna endurvekja þann góða sið að hafa verðlaunaafhendingu með kvöldverði ásamt mökum. Takið því frá kvöldið líka !!  Nándarverðlaun og allskonar verðlaun auk farandbikarsins og verðlauna fyrir sæti. Öldungaverðlaun.
 
Nánari upplýsingar um þessa viðburði verða birtar þegar nær dregur hverjum atburði.  ALLIR MEÐ.
Hér til hliðar má sjá kunnugleg andlit endurskoðenda með verðlaun eftir skemmtilegt golfmót. 
 
Kveðja frá einvöldum
 
Ívar Guðmundsson : ivar.gudmundsson@fjarstod.is
Sigurður Tómasson : sigtom@simnet.is

Til baka

Leita


Finndu það sem þú leitar að á FLE.is








Félag löggiltra endurskoðenda - FLE Suðurlandsbraut 6 108 Reykjavík Sími: 568 8118 Fax: 568 8139 Tölvupóstfang: fle@fle.is