Forsíða FLE

Fréttir og greinar
18. ágúst 2009

Skráning í löggildingarpróf

Prófin verða haldin í Háskólanum í Reykjavík og hefjast kl. 9 hvern prófdag. Væntanlegir prófmenn skulu fyrir 25. ágúst nk. tilkynna prófnefnd hvaða próf þeir hyggjast þreyta. Tilkynningar sendist formanni prófnefndar, Árna Tómassyni, Hraunbraut 20, 200 Kópavogi.  arni.tomasson@glitnirbank.com 

Tilkynningu skulu fylgja

  • nafn prófmanns, heimilisfang, tölvupóstfang
  • staðfesting um að fullnægt sé skilyrðum 4. og 6. tl. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 79/2008 eða  4. og 5. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 18/1997 eftir því sem við á,
  • kvittun fyrir greiðslu prófgjalds að fjárhæð kr. 180.000,-  sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 79/2008, um endurskoðendur, en kr. 60.000,- fyrir hvert próf skv. eldri reglugerð. Greiða skal prófgjald hjá Fjársýslu ríkisins, Sölvhólsgötu 7.
Til baka

Leita


Finndu það sem þú leitar að á FLE.is








Félag löggiltra endurskoðenda - FLE Suðurlandsbraut 6 108 Reykjavík Sími: 568 8118 Fax: 568 8139 Tölvupóstfang: fle@fle.is