Forsíða FLE

Fréttir og greinar
24. ágúst 2009

Margret G. Flóvenz tekur við sem forseti NRF

Ársfundur NRF (Norræna endurskoðendasambandið) var haldinn þann 22. ágúst 2009 í Gautaborg. Þar var Margret G. Flóvenz formaður FLE,  kjörin forseti sambandsins til næstu tveggja ára.  Hún tekur við af Norunn Byrkjeland í Noregi. Margret er fimmti forsetinn sem Íslendingar eiga hjá NRF en á 10 ára fresti er embættið okkar. Þeir sem gengt hafa embættinu af hálfu FLE eru þeir Árni Tómasson 2000-2002, Gunnar Sigurðsson 1990-1992, Halldór V. Sigurðsson 1978-1980 og Svavar Pálsson 1968-1970.

Á þessum sama fundi var ákveðið að Jens Röder tæki við sem framkvæmdastjóri NRF frá 1. janúar 2010 í stað Björns Markland sem margir endurskoðendur þekkja vel til.  Um leið flyst skrifstofa félagsins til Kaupmannahafnar og verður staðsett í húsakynnum FSR í Kronprinsessegade.

Þá voru tekin inn í NRF sem fullgildir meðlimir tvö ný félög endurskoðenda FRR frá Danmörku (Foreningen Registrerede Revisorer) og HRM/GRM frá Finnlandi (HTM-tilintarkastajat ry - GRM-revisorer rf) en þau hafa undangengin tvö ár verið áheyrnarfélagar.  

 

Til baka

Leita


Finndu það sem þú leitar að á FLE.is








Félag löggiltra endurskoðenda - FLE Suðurlandsbraut 6 108 Reykjavík Sími: 568 8118 Fax: 568 8139 Tölvupóstfang: fle@fle.is