Hinn 28. ágúst sl. voru samþykkt á Alþingi lög nr. 98/2009 um breytingu á ýmsum lögum vegna tilfærslu verkefna innan Stjórnarráðs Íslands. Við þessa lagabreytingu flytjast málefni endurskoðenda yfir í nýtt ráðuneyti, Efnahags- og viðskiptaráðuneyti þar sem Gylfi Magnússon er ráðherra.
Í nýju efnahags- og viðskiptaráðuneyti verður almenn hagstjórn, lagaumgjörð og eftirlit með fjármálamarkaði, mat á þróun og horfum í efnahagsmálum. Ennfremur verða þar málefni er tengjast umgjörð íslensks viðskiptalífs. Efnahagsskrifstofa forsætisráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins auk Hagstofunnar og Seðlabanka Íslands flytjast yfir á svið hins nýja ráðuneytis.
Breytingin mun eiga sér stað 1. október n.k. Harpa Theodórsdóttir sem hefur haft málefni endurskoðenda, ársreikninga og bókhald mun flytjast yfir með málaflokknum í hið nýja ráðuneyti. Hið nýja ráðuneyti mun vera til húsa að Sölvhólsgötu 7 gegnt Seðlabankanum.