Forsíða FLE

Fréttir og greinar
19. október 2009

Þorsteinn Haraldsson hlýtur verðlaun fyrir grein í Balans

Systursamtök okkar í Svíþjóð eru FAR SRS og í þeim eru 5.700 félagsmenn.  Félagið gefur út Tidskriften Balans sem kemur út tíu sinnum á ári, en tvö blaðanna eru tvöföld að stærð. Áskrifendur eru 16.800. Á skrifstofu FAR SRS og hjá blaðinu eru 40 starfsmenn.

Árlega eru veitt verðlaun fyrir bestu grein í Balans. Verðlaunin eru kennd við stofnanda PwC í Svíþjóð, C. H. Witts. Á ársfundi FAR SRS í Stokkhólmi 14. október voru verðlaunin veitt og tvær heiðurstilnefningar til Witts verðlauna. Þorsteinn Haraldsson, fyrrverandi formaður FLE, fékk heiðurstilnefningu fyrir grein um efnahagshrunið á Íslandi.  Hér má lesa grein Þorsteins sem birtist í Balans 12/2008 og skoða viðurkenningu fyrir hana.

Til baka

Leita


Finndu það sem þú leitar að á FLE.is








Félag löggiltra endurskoðenda - FLE Suðurlandsbraut 6 108 Reykjavík Sími: 568 8118 Fax: 568 8139 Tölvupóstfang: fle@fle.is