Forsíða FLE

Fréttir og greinar
27. október 2009

Kristrún endurkjörin í IFAC

Kristrún Helga Ingólfsdóttir hefur frá því í ársbyrjun 2007 setið sem fulltrúi Norræna endurskoðendasambandsins (NRF) í  International Accounting Education Standards Board (IAESB) sem er menntunarráð IFAC. Hún var í haust endurkjörin til næstu þriggja ára eða til ársins 2012. 

Hlutverk IAESB er að setja staðla og leiðbeiningar um menntun endurskoðenda, sérfræðinga í reikningshaldi og reikningshaldstækna sem aðildarfélög IFAC og félagsmönnum þeirra ber að fara eftir. Aðildarfélög IFAC eins og FLE hafa skuldbundið sig, eftir bestu getu, að sjá til þess að stöðlum IFAC sé framfylgt af félagsmönnum þeirra.

Fundir ráðsins voru fjórir á líðandi starfsári og voru haldnir í Toronto í desember 2008, Buenos Aires í mars, New York í júní og Brussel í október.  Á milli funda ráðsins eru starfandi verkefnahópar sem vinna að ákveðnum verkefnum og á Kristrún nú sæti í tveimur verkefnahópum. 
 
 Fyrir fundi IAESB eru haldnir símafundir, þar sem fulltrúum aðildarfélaga IFAC á Norðurlöndunum sem áhuga hafa á menntun endurskoðenda, er boðið að taka þátt.  Á þessum símafundum er farið yfir efni næsta fundar og gefst aðildarfélögunum eins og FLE með þessu móti kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri ásamt því að fá betri upplýsingar um verkefni ráðsins.  Þeir félagsmenn FLE sem áhuga hafa á að taka þátt í þessum símafundum er það velkomið og bent á að hafa samband við FLE eða beint við Kristrúnu. Einnig telur hún æskilegt að fá álit félagsmanna á menntunarstöðlunum, leiðbeinandi reglum og öðru efni sem IAESB hefur gefið út. Að lokum má benda á að útgefið efni IAESB má nálgast á www.ifac.org

Til baka

Leita


Finndu það sem þú leitar að á FLE.is








Félag löggiltra endurskoðenda - FLE Suðurlandsbraut 6 108 Reykjavík Sími: 568 8118 Fax: 568 8139 Tölvupóstfang: fle@fle.is