Þórir H. Ólafsson, endurskoðandi hjá PricewaterhouseCoopers hf. tók við embætti sem formaður Félags löggiltra endurskoðenda, á
aðalfundi félagsins 14. nóvember 2009. Þórir fékk löggildingu árið 1989. Hann hefur tekið drjúgan þátt í störfum félagsins, meðal annars setið í stjórn félagsins frá 2007 og í Menntunarnefnd 2003 - 2005 en seinna tímabililð var hann formaður nefndarinnar. Hér til hliðar er Þórir ásamt konu sinni Margréti Kjartansdóttur að taka á móti gestum á árshátíð FLE sem haldin var í kjölfar aðalfundarins.