Forsíða FLE

Fréttir og greinar
18. nóvember 2009

Ásetningsbrot starfsábyrgða í lögunum fellt út
Meðfylgjandi er frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 79/2008, um endurskoðendur.
Með frumvarpinu er lagt til að lögð verði niður skylda endurskoðenda til að hafa starfsábyrgðartryggingu vegna fjárhagstjóns af völdum ásetningsbrota. Komið hefur í ljós að vátryggingafélög hafa ekki getað boðið endurskoðendum starfsábyrgðartryggingar vegna tjóns  af ásetningsbrotum. Hafa þeir því ekki getað uppfyllt skilyrði 1. mgr. 6. gr. laga um endurskoðendur. Tillaga er því um niðurfellingu hennar.  Áfram stendur skylda endurskoðenda  til að taka starfsábyrgðartryggingu vegna gáleysisbrota . Gert er ráð fyrir gildistöku reglnanna við birtingu laganna ef samþykkt verða.
Til baka

Leita


Finndu það sem þú leitar að á FLE.is








Félag löggiltra endurskoðenda - FLE Suðurlandsbraut 6 108 Reykjavík Sími: 568 8118 Fax: 568 8139 Tölvupóstfang: fle@fle.is