Forsíða FLE

Fréttir og greinar
17. desember 2009

Niðurstöður úr löggildingarprófum

Nú liggja niðurstöður úr löggildingarprófum fyrir og hafa bréf með niðurstöðum verið send til þátttakenda. Alls skráðu sig 49 einstaklingar í prófin, 25 karlar og 24 konur.  Í nýja prófið skráðu sig alls 24, en samtals 25 í einstök próf samkvæmt gamla fyrirkomulaginu.

Útkoman er sem hér greinir eftir einstökum prófum:

Próf samkvæmt gamla fyrirkomulaginu:

  • Endurskoðun: 3 mættu í próf, 1 náði lágmarkseinkunn eða  33%. 
  • Reikningsskilafræði: 18 mættu í próf, 9 náðu lágmarkseinkunn eða 50%
  • Gerð reikningsskila: 18 mættu í próf, 9 náðu lágmarkseinkunn eða 50%.
  • Skattskil: 7 mættu í próf, 3 náðu lágmarkseinkunn eða 43%.

Nýja próffyrirkomulagið: 23 mættu í prófið sem tekið var 20. og 22. október, 9 náðu lágmarkseinkunn eða 39%. 

Alls er gerð tillaga um að 17 endurskoðendur útskrifist, 10 karlar og 7 konur.

Til baka

Leita


Finndu það sem þú leitar að á FLE.is








Félag löggiltra endurskoðenda - FLE Suðurlandsbraut 6 108 Reykjavík Sími: 568 8118 Fax: 568 8139 Tölvupóstfang: fle@fle.is