06. janúar 2010
Skattadagur FLE verður haldinn 15. janúar 2010 á Grand hóteli kl. 8:30 – 12:30
Opið er fyrir skráningu hér. Dagskráin er í grófum dráttum þessi en gæti tekið einhverjum breytingum: Friðgeir Sigurðsson, lögfræðingur hjá PwC fjallar um nýlegar breytingar á lögum um tekjuskatt, virðisaukaskatt, reglugerðir o.fl. sem tengjast þeim. Þá mun Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri ræða skattamál frá sjónarhorni embættisins, einnig kemur Benedikt Jóhannesson frá Talnakönnun og fjallar um skattamál. Að lokum verður Steinþór Haraldsson með áhugaverða úrskurði og dóma sem fallið hafa í skattalegu tilliti. Dagskrá í heild verður birt fljótlega á vef félagsins. Verð fyrir félagsmenn er kr. 18.000 en fyrir aðra kr. 27.000