Hádegisverðarfundur verður miðvikudaginn 3. mars, 2010 á Grand Hótel Reykjavík og fjallar að þessu sinni um lífeyrissjóðina og endurreisn atvinnulífsins. Að venju hefst fundurinn kl. 12:00. Skrá mig hér.
Gestur fundarins verður Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Lífeyrissjóðirnir urðu fyrir bylmingshöggi við fall helstu fjármálastofnana þjóðarinnar í upphafi kreppunnar í október 2008. Hver er staða þeirra núna til að standa við lífeyrisskuldbindingar sínar? Hvert hefur hlutverk lífeyrissjóðanna verið síðustu misserin við endurreisn atvinnulífsins? Hér er hægt að skoða nánar dagskrá og matseðil.