Endurskoðendur hafa með sér alþjóðleg sambönd og starfa eftir alþjóðlegum stöðlum.
Alþjóðasamband endurskoðenda IFAC (The International Federation of Accountants) er stærsta sambandið en einnig eru starfandi önnur hagsmunasamtök endurskoðenda eins og Evrópusamband endurskoðenda FEE
Alþjóðlegir staðlar eru nauðsynleg hjálpartæki þar sem lagaákvæði eru oft ekki nægjanlega skýr um einstaka liði. Helstu flokkar staðla eru: Reikningsskilastaðlar, endurskoðunarstaðlar og staðlar um gæðaeftirlit.