Gæðahandbók Endurskoðunarnefndar FLE
Gæðahandbók

Á félagsfundi í nóvember 2002 lagði Endurskoðunarnefnd FLE fram og kynnti leiðbeiningar um skipulagningu og framkvæmd endurskoðunar sem kallaðar voru "Endurskoðunarferill - gæðahandbók".

Endurskoðunarnefnd FLE hélt síðan þann 22. september 2003 námskeið um ferli endurskoðunar.  Á námskeiðinu var farið ítarlega yfir áðurnefnda gæðahandbók, sýnd nokkur dæmi og rætt almennt um skipulagningu, framkvæmd og lok endurskoðunar. 

Útgáfa gæðahandbókar og námskeiðið sem Endurskoðunarnefnd FLE stóð fyrir var nauðsynlegur þáttur í innleiðingu nýrra gæðareglna sem samþykktar voru á almennum félagsfundi FLE þann 5. maí 2004.

Handbókin sem og glærur og annað efni sem lagt var fram á námskeiðinu er aðgengilegt hér fyrir neðan.




Félag löggiltra endurskoðenda - FLE Suðurlandsbraut 6 108 Reykjavík Sími: 568 8118 Fax: 568 8139 Tölvupóstfang: fle@fle.is