IFAC- The International Federation of Accountants, Alþjóðasambands endurskoðenda var formlega stofnað á ráðstefnu enurskoðenda í Munchen árið 1977 og hafði þá verið í umræðunni allt frá árinu 1973. Til IFAC teljast nú 157 félög frá 118 löndum með yfir tvær og hálfa milljónir endurskoðenda sem meðlimi.
Markmið IFAC er að þjóna samfélaginu, styrkja endurskoðendastéttina og stuðla að þróun sterks alþjóðlegs hagkerfis með því að setja og stuðla að fylgni endurskoðenda við alþjóðlega endurskoðunarstaðla ásamt því að tjá sig um almannahagsmuni þegar þeir varða endurskoðendur.
Á vegum IFAC starfa 7 fastanefndir auk sérstakra vinnuhópa. Fastanefndirnar sjö hafa hver um sig skilgreind hlutverk. Nánar má fræðast um hlutverk þeirra og útgefið efni frá þeim með því að fylgja tenglunum yfir á heimasíðu IFAC.
IAASB - International Auditing and Assurance Standards Board er sjálfstæð nefnd innan IFAC sem sér um útgáfu hágæða staðla um endurskoðun og tendar þjónustur og gæðamál. Útgefna staðla er hægt að nálgast í þessu skjali eða á heimasíðu IFAC
Compliance Committee
Education Committee
Ethics Committee
Professional Accountants in Business
Public Sector Committee
Transnational Auditors Committee