Reikningsskilanefnd Félags löggiltra endurskoðenda er fagnefnd sem heyrir undir Félag löggiltra endurskoðenda (FLE). Í nefndinni eiga sæti þrír félagsmenn hverju sinni auk eins varamanns.
Hlutverk nefndarinnar er að fylgjast með þróun reikningsskila hérlendis og erlendis og vinna að samræmingu reikningsskila.
Nefndin hefur sent frá sér drög að leiðbeinandi reglum um ýmis svið reikningsskila, auk álitsgerða. Starf nefndarinnar hefur breyst með tilkomu Reikningsskilaráðs, sem sér um útgáfu reikningsskilareglna. Á síðastliðnum árum hefur nefndin aðallega svarað fyrirspurnum um einstök atriði varðandi reikningsskil ásamt því að gefa umsögn um drög að reglum Reikningsskilaráðs.
Reikningsskilanefnd FLE starfsárið 2009- 2010 er þannig skipuð:
Kjartan Arnfinnsson, formaður
Arna Guðrún Tryggvadóttir
Jóhann Ioan Constantin Solomon
Þorsteinn Guðjónsson