Endurskoðunarnefnd er fagnefnd sem heyrir undir Félag löggiltra endurskoðenda (FLE). .

Markmið endurskoðunarnefndar er að vinna að leiðbeinandi reglum um endurskoðun. Reglunum er ætlað að ná yfir þær kröfur sem gerðar eru til viðurkenndra endurskoðunaraðferða á hverjum tíma og eru kallaðar góð endurskoðunarvenja. Hlutverk nefndarinnar er að fylgjast með þróun endurskoðunar hérlendis og erlendis og vinna að samræmingu á þeim störfum félagsmanna, sem varða endurskoðun almennt.  Nefndin fylgist með nýjungum á sínu sviði og notar, þar sem því verður við komið, alþjóðlegar leiðbeinandi reglur  til viðmiðunar þeim íslensku.

FLE á aðild að Samtökum evrópskra endurskoðenda (FEE) og Alþjóðasambandi endurskoðenda (IFAC) og hefur skuldbundið sig til að kynna leiðbeinandi reglur þeirra samtaka og vinna að því að þær verði hluti af góðri endurskoðunarvenju á Íslandi.

Endurskoðunarnefnd FLE, starfsárið 2011-2012 er þannig skipuð:      

Helga Harðardóttir, formaður
Davíð Arnar Einarsson
Jón Rafn Ragnarsson
Hrafnhildur Helgadóttir