Í lögum um endurskoðendur nr. 79/2008 er endurskoðun skilgreind á eftirfarandi hátt:„Óháð og kerfisbundin öflun gagna og mat á þeim í þeim tilgangi að láta í ljós rökstutt og faglegt álit endurskoðanda um áreiðanleika þeirra og framsetningu í samræmi við lög, settar reikningsskilareglur eða önnur skilyrði sem fram koma í álitsgerðinni.“
Hér er að finna ýmislegt sem hefur með endurskoðun og endurskoðendur að gera umhverfi þeirra, hlutverk og ábyrgð. Þá eru hér upplýsingar um Endurskoðendaráð sem er eftirlitsaðili endurskoðenda hér á landi. Ennfremur er hér að finna alþjóðlega staðla, siðareglur endurskoðenda, lög og reglugerðir, ásamt upplýsingum um alþjóðasamband endurskoðenda IFAC.