Löggilding til endurskoðunarstarfa

Þann  1. janúar 2009 tóku ný lög um endurskoðendur gildi. Jafnframt féllu úr gildi lög nr. 18/1997, um endurskoðendur, með síðari breytingum.

Samkvæmt 1. gr. laga þessara, um endurskoðendur, teljast þeir vera endurskoðendur sem hafa þekkingu til að gefa hlutlaust og áreiðanlegt álit á reikningsskilum og öðrum fjárhagsupplýsingum til notkunar í viðskiptum, ráðherra hefur löggilt til endurskoðunarstarfa og fullnægja að öðru leyti skilyrðum laga þessara.

Til þess að öðlast löggildingu til endurskoðunar verður viðkomandi að standast próf sem þriggja manna prófnefnd annast. Ráðherra skipar nefndina til fjögurra ára í senn. Próf skulu haldin að jafnaði einu sinni á ári  (venjan er að halda þau í október) og er það ráðherra sem gefur út löggildingarskírteini handa endurskoðanda. Nánar er kveðið á um fyrirkomulag prófa í reglugerð nr. 589/2009 um próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa.




Félag löggiltra endurskoðenda - FLE Suðurlandsbraut 6 108 Reykjavík Sími: 568 8118 Fax: 568 8139 Tölvupóstfang: fle@fle.is