Alþjóðlegir staðlar

Endurskoðendur starfa eftir alþjóðlegum stöðlum. Helstu staðlarnir snúa að reikningsskilum (IFRS) endurskoðun (ISA) og gæðaeftirliti. Alþjóðlegir reikningsskilastaðlar hafa verið þýddir á íslensku og er hægt að nálgast þá hér. Endurskoðunarstaðlarnir hafa ekki verið þýddir en í lögum um endurskoðendur kemur fram að endurskoðendur skuli rækja störf sín í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og aðþjóðlega staðla um gæðaeftirlit.

Nýr norrænn staðall (SASE) er nú í kynningar- og umsagnarferli, en óskað var eftir viðbrögðum fyrir 19. október 2015. Hér má nálgast meiri upplýsingar um SASE staðalinn.