Hvað er endurskoðun?

Endurskoðunarnefnd FLE hefur tekið saman upplýsingar um fjölbreytta þjónustu endurskoðenda með yfirskriftinni: Áritanir og staðfestingar endurskoðenda.

Í janúar 2011 gaf endurskoðunarnefnd FLE út bæklinginn: Endurskoðandinn -  Umhverfi, hlutverk, ábyrgð. Eins og segir í inngangi bæklingsins er markmiðið með honum að auka skilning á hlutverki og ábyrgð endurskoðenda m.a. með því að svara spurningum eins og:

  • Hver ber ábyrgð á gerð ársreiknings?
  • Hvað er endurskoðun?
  • Hvaða faglegu kröfur eru gerðar til endurskoðenda?
  • Hver eru helstu verkefni endurskoðenda?
  • Hvernig ber að skilja mismunandi áritanir?