Bækur

Í gegnum tíðina hefur FLE gefið út nokkrar bækur. Hér að neðan eru upplýsingar um þær helstu.

Íðorðaskrá FLE
Íðorðaskrá Orðanefndar FLE inniheldur rúmlega tvö þúsund orð og hugtök úr enskum texta og þýðingar á þeim yfir á íslenska tungu. Hér getur þú fengið að vita meira um útgáfuna.  Íðorðaskráin kom út prentuð árið 1996 og fæst enn á skrifstofu FLE (sími: 568-8118 fle@fle.is) fyrir kr. 2000.- Íðorðaskráin er aðgengileg rafrænt og leitarhæf á www.snara.is.   Einnig er hægt að nálgast íðorðaskrá FLE á pdf formi. Um tvö skjöl er að ræða:

Bækurnar Löggiltir endurskoðendur
Félagið hefur á árunum 2009-11 ráðist í stórvirki með útgáfu bóka um löggilta endurskoðendur. Bækurnar eru til sölu hjá FLE og kosta saman kr. 8000 en stakar bækur kosta kr. 4.000. Hægt er að kaupa bækurnar með því að hringja í síma FLE 568 8118 eða senda tölvupóst á fle@fle.is

  • Fyrra bindið ber heitið: Æviskrár löggiltra endurskoðenda 1929-2010 og er tekin saman af Gunnlaugi Haraldssyni.
  • Sú seinni: Saga félags löggiltra endurskoðenda er skrifuð af Kristjáni Sveinssyni sagnfræðingi.

Siðareglur fyrir endurskoðendur
Voru gefnar út á bókarformi árið 2011. Bókin fæst á skrifstofu FLE (sími: 568-8118 fle@fle.is) og kostar kr. 4000. Siðareglurnar eru einnig aðgengilegar á pdf - sjá hér að neðan. Á aðalfundi Félags löggiltra endurskoðenda (FLE) þann 14. nóvember 2009 voru samþykktar Siðareglur fyrir endurskoðendur sem gilda munu fyrir alla endurskoðendur á Íslandi. Siðareglurnar voru uppfærðar og samþykktar þannig af aðalfundi Félags löggiltra endurskoðenda FLE 5. nóvember 2010. Hér má nálgast uppfærðar siðareglur fyrir endurskoðendur sem tóku gildi 1. janúar 2011. Þessar reglur byggja á siðareglum alþjóðasamtaka endurskoðenda (IFAC ) „Code of Ethics for Professional Accountants” frá júní 2005 ásamt þeim breytingum sem fram koma í endurskoðuðum reglum IFAC sem voru gefnar út í júlí 2009. Samkvæmt lögum um endurskoðendur sem tóku gildi 1. janúar 2009 skulu allir endurskoðendur á Íslandi fylgja siðareglum sem settar hafa verið af félaginu. Með samþykkt aðalfundar FLE á reglunum og að fenginni staðfestingu ráðherra á þeim öðlast þær formlega gildi. Siðareglurnar voru staðfestar af ráðherra efnahags-og viðskiptamála 29. september 2010.