Frestur til að sækja um styrk lengdur til 31. október

Stjórn Námsstyrkja- og rannsóknarsjóðs FLE hefur ákveðið að lengja umsóknarfrest um styrki til 31. október 2015. Félag löggiltra endurskoðenda – FLE auglýsir til umsóknar styrki frá Námsstyrkja- og rannsóknarsjóði félagsins. 

Markmið sjóðsins er að:

  • Styrkja bóklega menntun endurskoðenda með því að veita ýmist styrki til einstaklinga sem stunda framhaldsnám í endurskoðun og reikningsskilum eða styrkja stofnanir sem standa fyrir slíku námi.
  • Veita styrki til eflingar rannsókna á sviði reikningshalds og endurskoðunar í þeim tilgangi að efla faglega umræðu um efnið, viðhalda og auka faglega þekkingu endurskoðenda eða styrkja rannsóknir sem snerta beint hagsmuni FLE eða lögbundið hlutverk þess.

Umsóknarfrestur um náms- eða rannsóknarstyrk á árinu 2015 er framlengdur til 31. október. Stjórn sjóðsins metur umsóknir og ákvarðar um úthlutun styrkja eigi síðar en 15. nóvember næst komandi. Nálgast má skipulagsskrá sjóðsins, úthlutunarreglur og umsóknarslóð hér