Nýir löggiltir endurskoðendur

Prófnefnd Endurskoðendaráðs hefur lokið við að yfirfara úrlausnir þeirra er þreyttu próf til löggildingar í endurskoðun dagana 12. og 14. októrber 2015. Niðurstaða nefndarinnar er að eftirtaldir átta einstaklingar hafi staðist tilskilin verkleg próf og þar með öðlast rétt til að fá löggildingu sem endurskoðendur. Félagið óskar þeim innilega til hamingju með áfangann og býður þá velkomna í félagið. 

Ásbjörn Guðmundsson (Deloitte),
Brynja Kristjánsdóttir (BT)
Eyþór Guðjónsson (Deloitte)
Guðmundur Ingólfsson (Deloitte)
Kristján Þór Ragnarsson (Deloitte)
Magnús Mar Vignisson (PwC)
Oddný Assa Jóhannsdóttir (KPMG)
Örvar Omrí Ólafsson (BDO)