Útkoman úr löggildingarprófunum

Alls náðu 7 prófmenn tilskilinni lágmarkseinkunn 7,5 sem svarar til 30,4% af þeim 23 sem gengust undir prófið.

Alls náðu 7 prófmenn tilskilinni lágmarkseinkunn 7,5 sem svarar til 30,4% af þeim 23 sem gengust undir prófið. Skiptingin var þannig að 15 karlar og 8 konur fóru í prófið, meiri hluti þeirra eða 15 manns voru að reyna í fyrsta sinn við prófið.

Af þeim 7 sem náðu voru 6 karlar og ein kona og voru allir nema einn að reyna í fyrsta sinn. Allir sem náðu voru frá fjórum stærstu stofunum. Félag löggiltra endurskoðenda býður nýja löggilta endurskoðendur velkomna í hópinn. Nafnalistinn verður birtur um leið og prófstjóri sér fært á því.