Að taka löggildingarpróf - nemanámskeið

FLE gengst fyrir námskeiði um undirbúning og próftöku löggildingarprófa fimmtudaginn 9. júní kl. 9-11. Námskeiðið verður haldið á Grand hóteli - í sal sem kallast Gallerí. SKRÁ MIG HÉR. Farið verður yfir hagnýt atriði er varða undirbúning fyrir löggildingarpróf og svo hvernig best er að haga vinnubrögðum í prófunum sjálfum. Námskeiðið er frítt fyrir félagsmenn með nemaaðild en kr. 13.000 fyrir aðra.

Leiðbeinendur verða þau Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Atli Jóhannsson endurskoðendur hjá PricewaterhouseCoopers ehf. Bryndís fékk löggildingu árið 2011. Bryndís hefur umsjón með gæðamálum og aðferðafræði við endurskoðun hjá PwC og hefur verið nemum innan handar við undirbúning próftöku. Atli er löggiltur endurskoðandi frá 2015 og hefur því nýlega reynslu af próftöku.