Innan félagsins eru starfandi átta fastanefndir; Álitsnefnd, Endurskoðunarnefnd, Gæðanefnd, Kynningarnefnd, Menntunarnefnd, Reikningsskilanefnd, Siðanefnd og Skattanefnd samanber 12. grein í samþykktum félagsins.
Auk framangreindra fastanefnda getur stjórnin skipað sér við hlið í nefndir til að annast tiltekin málefni innan félagsins, eftir því sem ástæða þykir til.
Orðanefnd var sett á laggirnar eftir aðalfund 2010. Hún er þannig skipuð:
Stefán Svavarsson
Gunnar Sigurðsson
Ólafur B. Kristinsson
Hjördís Ýr Ólafsdóttir
Afmælisnefnd er nú starfandi að ósk stjórnar. Hún er þannig skipuð:
Símon Á. Gunnarsson, formaður
Hrefna Gunnarsdóttir
Ólafur Viggó Sigurbergsson
Þorsteinn Haraldsson