Á árinu 1991 var sett á stofn nefnd á vegum Félags löggiltra endurskoðenda, Orðanefnd FLE. Hlutverk nefndarinnar var í fyrsta lagi að finna heppilegar þýðingar á erlendum orðum á sviði endurskoðunar og reikningshalds og í annan stað að samræma þýðingar á íslenskum reikningsskilum yfir á erlendar tungur, einkum ensku.
Nefndin hófst þegar handa við að afla gagna og að velja þau orð og hugtök í íðorðaskrá FLE er féllu að framangreindu verkefni. Með íðorði er átt við sérfræðiorð í tiltekinni fræðigrein. Samið var við orðabanka Háskóla Íslands um rafræna vistun en nú hefur honum verið lokað svo íðorðaskráin er því miður eingöngu til á prenti og fæst á skrifstofu FLE.
Íðorðaskrá Orðanefndar FLE inniheldur rúmlega tvö þúsund orð og hugtök úr enskum texta og þýðingar á þeim yfir á íslenska tungu. Hér getur þú fengið að vita meira um útgáfuna.