Endurskoðunardagur FLE 2026

Endurskoðunardagur FLE 2026 verður haldinn þann 22. maí í salnum Háteig á 4. hæð Grand hótels.

Við hvetjum sem flesta til að mæta á staðinn en eins og undanfarin ár verður jafnframt boðið upp á streymi og verður það opið í 2 vikur eftir að ráðstefnunni lýkur.

Við byrjum á skráningu og kaffisopa á milli kl 8:45 - 9:00 en formleg dagskrá hefst kl. 9:00 og stendur til kl. 12:30.

Ráðstefnan gefur 3,5 endurmenntunareiningar í flokknum endurskoðun. Verð er 28.000 kr. fyrir félagsmenn og starfsmenn á endurskoðunarstofum en 35.000 kr. fyrir aðra.

SKRÁ MIG HÉR!

Accountancy Europe

Eelco van der Enden, framkvæmdastjóri Evrópusamtakanna Accountancy Europe, segir okkur frá starfsemi samtakanna, helstu verkefnum sem eru fram undan og stefnumótun fyrir næstu ár. FLE er aðili að Accountancy Europe en í samtökunum eru 49 fagfélög frá 35 löndum.

Menntun endurskoðenda

Jón Arnar Baldurs og Margret G. Flóvenz fjalla um menntun endurskoðenda á víðum grundvelli. Skoðað verður núverandi lagaumhverfi, fjallað um meistaranámið í háskólunum tveimur og þjálfunina á stofunum. Einnig verður fjallað um löggildingarprófið, niðurstöður síðasta árs og breytingar fram undan. Þá verður rætt um endurmenntun endurskoðenda og eftirlit með löggildingu þeirra. Loks verður farið stuttlega yfir menntun endurskoðenda í nágrannalöndunum. Að þessu loknu verður efnt til umræðna meðal fundarmanna og safnað tillögum þeirra um það sem betur mætti fara varðandi menntun endurskoðunarstéttarinnar.

Notkun gervigreindar í endurskoðun

Friðrik Einarsson, endurskoðandi hjá KPMG, segir frá því hvernig notkun gervigreindar hefur haft áhrif á endurskoðun ársreikninga, hvernig hún hefur breytt verklagi á síðustu misserum, hver líkleg þróun sé í notkun í framtíðinni og hverjar eru helstu hindranir og hættur við notkun á henni.

Frá frumvörpum til framtíðarregluverks

Harpa Theodórsdóttir, staðgengill skrifstofustjóra í atvinnuvegaráðuneytinu, segir frá frumvarpi til breytinga á lögum um ársreikninga sem nú liggur fyrir Alþingi og verður væntanlega að lögum nú á vorþingi, vinnuhópi um endurskoðun á lögum um bókhald og fyrirhugaðri innleiðingu á sjálfbærniregluverki Evrópusambandsins.