Hádegisfundur - jólafundur

Hádegisfundur með jólaívafi verður haldinn fyrsta miðvikudag (5.) í desember á Grand hóteli. Jólabjöllurnar verða gestir fundarins. Félagsmenn eru hvattir til að koma og eiga góða stund saman. Jóladiskur er í boði sem kostar kr. 3.700 fyrir félagsmenn og greiða þarf við komu. SKRÁ MIG HÉR.

Á jóladiskinum er eftirfarandi að finna:

  • Birkireyktur Lax með piparrótarsósu
  • Síld á rúgbrauði
  • Hangikjöt
  • Hamborgarahryggur
  • Kartöflusalat
  • Eplasalat
  • Laufabrauð