Haustráðstefna FLE 2025
Haustráðstefna FLE er með skemmtilegri viðburðum sem félagið heldur og verið vel sótt undanfarin ár. Vonandi sjáum við sem flesta á Haustráðstefnunni 2025 sem verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica (2. hæð) föstudaginn 7. nóvember nk.
8:15 Skráning hefst
9:00 – 9:05 Ráðstefnan sett
Kristrún Helga Ingólfsdóttir, formaður FLE
9:05 – 9:50 Niðurstöður rannsóknar fyrir FLE um það hvernig megi laða að ungt og
hæfileikaríkt fólk til starfa við endurskoðun
Valdimar Sigurðsson, prófessor við Háskólann í Reykjavík
9:50 – 10:20 Veiting gullmerkis FLE, morgunhressing og afmæliskaka í tilefni af 90 ára afmæli FLE
10:20 - 11:20 Hlunnindi og fríðindi með fyrirvara
Guðbjörg Þorsteinsdóttir, lögmaður og meðeigandi hjá Deloitte Legal ehf.
11:20 - 11:30 Kaffihlé
11:30 - 12:30 Samskiptafærni og góð tjáning á vinnustað – á tímum rafrænnar einveru
Sirrý Arnardóttir, stjórnendaþjálfari og fjölmiðlakona
12:30 – 13:15 Hádegisverður
13:15 - 14:15 Netöryggismál - hvernig samfélagið er öflugasta varnarlínan
Theódór Ragnar Gíslason, framkvæmdastjóri Defend Iceland
14:30 Aðalfundur FLE
Ráðstefnan gefur samtals 5 einingar samkvæmt reglum um endurmenntun endurskoðenda sem skiptast í tvær einingar í flokknum endurskoðun, eina einingu í flokknum skattamál og félagaréttur og tvær einingar í flokknum siðareglur og fagleg gildi.
Ráðstefnan kostar 46.500 kr. og er eingöngu opin fyrir félagsmenn í FLE og starfsmenn endurskoðunarfyrirtækja. Hádegisverður er innifalinn í verðinu.
