Haustráðstefna FLE 2026
Haustráðstefna FLE er með skemmtilegri viðburðum sem félagið heldur og verið vel sótt undanfarin ár. Vonandi sjáum við sem flesta á Haustráðstefnunni 2026 sem verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica 2. hæð föstudaginn 6. nóvember. Takið daginn frá!
8:15 Skráning hefst
9:00 – 9:05 Ráðstefnan sett
Elín Hanna Pétursdóttir, formaður FLE
9:05 – 9:40 Upphafserindi
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair
9:40 – 10:00 Morgunhressing og kaffi
10:00 – 11:00 Vinnustofa lota 1
11:00 - 11:10 Skiptitími
11:10 - 12:10 Vinnustofa lota 2
12:10 – 13:00 Hádegisverður
13:00 - 14:00 Vinnustofa lota 3
14:30 Aðalfundur FLE hefst
Þegar þátttakendur skrá sig á ráðstefnuna velja þeir þrjár vinnustofur af fjórum sem í boði eru. Nánari upplýsingar um vinnustofurnar er að finna hér:
Vinnustofa 1
Að halda jafnvægi þegar allt þarf að stemma
Ragheiður Guðfinna Guðnadóttir, vinnu- og félagssálfræðingur hjá Hugarheimi, fjallar um einkenni og afleiðingar streitu með áherslu á forvarnir og snemmt inngrip sem felur í sér sérhæfðar streituvarnir sem hver og einn tekur til sín. Farið verður yfir hvernig álag (stress) byggist yfir í streitu, og hvernig langtíma streita byggist yfir í neikvæða streitu (örmögnun). Farið verður yfir einkenni streitu, afleiðingar streitu og streituvarnir, það er að segja hagnýtar leiðir (verkfærakistu) til takast á við streituna, áður en hún fer að kosta okkur heilsuna.
Endurmenntunareining: Siðareglur og fagleg gildi
Vinnustofa 2
Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka – framkvæmd áhættumats og áreiðanleikakannana, tilkynningarskylda og hvað betur má fara
Vinnustofan hefst á þremur fyrirlestrum en svo taka við umræður meðal þátttakenda og fyrirlesara. Birkir Guðlaugsson og Sigríður Þóra Þórðardóttir frá Skattinum fjalla um grunnskyldur, reynslu úr eftirliti, hvað betur megi fara og væntingar eftirlitsaðila. Eggert Ármann Ármannsson frá skrifstofu fjármálagreininga lögreglu (SFL) mun fjalla um tilkynningarskyldu, tilkynningarfjölda og fleira en Anna Guðrún Ragnarsdóttir og / eða Eiríkur Ragnarsson frá ríkislögreglustjóra (RLS) fræða þátttakendur um gildandi áhættumat um peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka og fjármögnun gereyðingavopna með áherslu á endurskoðendur ásamt stuttri umfjöllun um uppfærslu áhættumats ríkislögreglustjóra á næsta ári.
Endurmenntunareining: Endurskoðun
Vinnustofa 3
Rabb um siðfræði og siðferði
Margret G. Flóvenz fjallar um siðfræði og siðferði, jafnt almennt sem í störfum endurskoðenda og þátttakendur ræða saman um þetta mikilvæga málefni.
Endurmenntunareining: Siðareglur og fagleg gildi
Vinnustofa 4
Bundnir eiginfjárreikningar og álitamál um arðgreiðsluheimildir félaga
Unnar Friðrik Pálsson og Sæmundur Valdimarsson fjalla um bundna eiginfjárreikninga og álitamál um arðgreiðsluheimildir félaga en sérstök áhersla verður lögð á umræður meðal þátttakenda.
Endurmenntunareining: Skatta- og félagaréttur
Ráðstefnan kostar 48.000 kr. og er eingöngu opin fyrir félagsmenn í FLE og starfsmenn
endurskoðunarfyrirtækja. Hádegisverður er innifalinn í verðinu.
Ráðstefnan gefur samtals 5 einingar samkvæmt reglum um endurmenntun endurskoðenda. Allir þátttakendur fá tvær einingar í flokknum siðareglur og fagleg gildi og síðan þrjár til viðbótar sem fer eftir vali á vinnustofum.
Vinsamlegast skráið þátttöku ykkar á vef Félags löggiltra endurskoðenda eigi síðar en kl. 12:00 þann 4. nóvember. Að þeim tíma liðnum er ekki hægt að tryggja einstaklingsval á vinnustofum.
