Haustráðstefna og aðalfundur FLE

Það fjölgar með árunum þeim félagsmönnum sem velja að fara á Haustráðstefnu félagsins sem verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica 2. hæð föstudaginn 1. nóvember. SKRÁ MIG Hér.  Ráðstefnan verður með vinnustofufyrirkomulagi eins og undanfarin ár. Að vanda er efnið fjölbreytt og hver og einn getur valið þrjár vinnustofur af fimm sem í boði eru. 

Ráðstefnan gefur samtals 5 einingar, 2 fyrir ráðstefnuna sjálfa og þrjár sem fara eftir vali á vinnustofum. Ráðstefnan kostar kr. 39.000 og innifalið í þátttökugjaldinu er smáréttahlaðborð í hádeginu. Strax að lokinni ráðstefnu verður svo aðalfundur félagsins. Ráðstefnustjóri er Arna G. Tryggvadóttir. Hér má nálgast ítarlegri upplýsingar um ráðstefnuna og vinnustofurnar. Vinsamlegast skráið þátttöku ykkar á vef Félags löggiltra endurskoðenda www.fle.is eigi síðar en kl. 12:00 þann 29. október. Að þeim tíma liðnum er ekki hægt að tryggja einstaklingsval á vinnustofum.

kl. 8:30  H.Ágúst Jóhannesson setur ráðstefnuna

kl. 8:40  Hvað er framundan hjá endurskoðendum á Norðurlöndum?  
             Fyrirlesari er Helene Agélii, nýr framkvæmdastjóri norræna endurskoðendasambandsins (NRF)

Vinnustofur eru í þremur lotum, klukkutíma langar og hefjast kl. 10:00, 11:10 og 13:00 - Boðið verður upp á eftirfarandi vinnustofur:

kl. 14:00  Aðalfundur FLE hefst á Hilton Nordica Reykjavík strax að lokinni ráðstefnu

kl. 16:00  Léttar veitingar í boði félagsins