Heimsókn til fjársýslunnar

Við höfum fengið boð í heimsókn til fjársýslu ríkisins þann 4. júní klukkan 16:00.

Þar munum við fræðast um starfsemi fjársýslunnar sem og fjármál og reikningsskil opinberra aðila (IPSAS). Þess má geta að hjá fjársýslunni starfa sex félagsmenn, þeirra á meðal fyrrverandi formaður félagsins, Kristrún H. Ingólfsdóttir og bráðum bætist sjöundi félagsmaðurinn í hópinn.

Að sjálfsögðu verður boðið upp á veitingar en þær eru í boði FLE. Við hvetjum sem flesta félagsmenn til að nýta sér þetta góða boð, fræðast um starfsemi fjársýslunnar og eiga góða stund saman. Jafnframt biðjum við ykkur um að skrá ykkur sem fyrst og ekki síðar en 1. júní. 

Fræðsluerindi fjársýslunnar gefur eina einingu í endurmenntun í flokknum reikningsskil og fjármál.

SKRÁ MIG HÉR!

 

Tími: Fimmtudagur 4. júní kl. 16:00

Staðsetning: Katrínartún 6 (í sama húsi og Skatturinn) en athugið að gengið er inn Bríetartúnsmegin.

Það er hægt að leggja í bílakjallaranum (gegn gjaldi) ef það eru ekki laus stæði við húsið.

Skráningarfrestur: Til og með 1. júní

Endurmenntunareiningar: 1 eining í flokknum reikningsskil og fjármál