Jólafundur á Grand hóteli með góðum veitingum

Hefðbundinn jólahádegisfundur verður haldinn 6. desember á Grand hóteli kl. 12:00 með jólamat að venju. SKRÁ MIG HÉR Gestur fundarins verður Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í Bústaðakirkju. Jóladiskur er í boði sem kostar kr. 3.500 fyrir félagsmenn og greiða þarf við komu. Á jóladiskinum, sem reyndar er borinn fram á tveimur diskum, forréttur og aðalréttur, er eftirfarandi að finna:

Birkireyktur Lax með piparrótarsósu
Reykt Nautatunga
Síld á rúgbrauði
Hangikjöt
Hamborgarahryggur
Kartöflusalat
Eplasalat
Laufabrauð