Námskeið - Arðgreiðslur frá A til Ö

Námskeið - daginn fyrir Haustráðstefnu. Fjallað verður um arðgreiðslur frá víðu sjónarhorni. SKRÁ MIG HÉR Námskeiðinu verður streymt í rauntíma (en skráning í sal fellur niður, vegna sóttvarnar fjöldatakmarkana). Leiðbeinandi er Guðbjörg Þorsteinsdóttir lögfræðingur og meðeigandi hjá Deloitte. Námskeiðið gefur 2 endurmenntunareiningar í flokknum skattur- og félagaréttur og eina í flokknum reikningsskil og fjármál. Verð er kr. 21.000 fyrir félagsmenn og starfsmenn endurskoðunarstofa, en 28.000 fyrir aðra. 

Námskeiðið mun taka á lögfræðilegum- og skattalegum álitamálum í tengslum við arðsúthlutanir auk þess sem farið verður í skilgreiningar á helstu hugtökum eins og t.d. hagnaði og frjálsum sjóðum. Þá verður fjallað um eignir móður og dótturfélaga, arðgreiðsluheimildir, formskilyrði og fleira sem skiptir máli. Að lokum verður dómur Hæstaréttar í máli nr. 2/2020 reifaður, auk annarra áhugaverðra dóma og úrskurða á þessu sviði.

Á námskeiðinu verður leitast við að taka saman helstu gildandi reglur á þessu sviði og gera lauslega grein fyrir þeim þannig að heildstæð mynd fáist af arðgreiðslum og framkvæmd þeirra almennt. Hér eru ítarlegri upplýsingar.