Notendaráðstefna Descartes á Íslandi
Notendaráðstefna Descartes á Íslandi er ætluð notendum og þeim sem vilja kynna sér endurskoðunarkerfið og verður haldið í tölvustofu Háskólans í Reykjavík við Menntaveg 1, fimmtudaginn 15. nóvember kl. 12:30-15:30.
Björn Óli Guðmundsson löggiltur endurskoðandi hjá Enor mun hafa umsjón með notendaráðstefnunni. Ráðstefnan veitir 3 einingar í endurskoðun, verð kr. 19.500 fyrir félagsmenn og starfsmenn þeirra. SKRÁ MIG HÉR
Notendaráðstefnan er viðburður þar sem áherslan verður á að kenna á kerfið og leiðbeina notendum varðandi virkni þess. Farið verður yfir alla þætti kerfisins og gefst þátttakendum tækifæri til að koma með spurningar eða atriði sem þeir hafa verið að glíma við. Auk þess verða kynntar breytingar á kerfinu og notendur geta komið reynslu sinni á framfæri. Þessi kynning er mikilvæg fyrir endurskoðendur og starfsmenn þeirra við að tileinka sér notkun á Descartes sem og alla þá endurskoðendur sem hafa áhuga á að kynna sér þennan athyglisverða hugbúnað og þá möguleika sem hann býður upp á.