Rafrænt námskeið - Vinna endurskoðenda á óvissutímum

Rafrænt námskeið - Vinna endurskoðenda á óvissutímum

Námskeiðið verður aðgengilegt rafrænt frá mánudeginum 28. september til 31.01.2021 (framlengt). SKRÁ MIG HÉR. Leiðbeinandi er Ingrid Kuhlman sérfræðingur hjá Þekkingarmiðlun. Námskeiðið gefur 3 endurmenntunareiningar í flokknum siðareglur og faglegt gildi. Verð fyrir námskeiðið er kr. 21.000 fyrir félagsmenn. Þegar námskeiðið verður aðgengilegt þá munum við hafa samband við þig og senda þér upplýsingar um hvernig þú nálgast efnið sem jafngildir mætingu og er námskeiðsgjald óendurkræft

Námskeiðslýsing:

Þetta ár hefur litast af óvissutímum og hafa endurskoðendur ekki farið varhluta af því. Á þessu námskeiði er ætlunin að skoða hvaða áhrif það hefur á endurskoðendur og samstarfsfólk að vinna við svona kringumstæður. Horft verður á málið m.a. út frá siðfræðilegu sjónarhorni og farið yfir einkenni óvissutíma, áhrif og helstu spurningar sem vakna:

  • Breytt vinnuumhverfi - að vinna heima eða vinna í afmörkuðum hólfum
  • Greining, smit, sóttkví og að missa úr vinnu – áhrif þess
  • Samskiptabann og rafræn samskipti við viðskiptavini og samstarfsmenn
  • Hver eru einkenni streitu og ýmis konar sálræn eða geðræn merki
  • Eftirstöðvar svona ástands til lengri tíma og úrvinnsla