Reikningsskiladagur
Reikningsskiladagur FLE verður haldinn fimmtudaginn 2. október kl. 9:00 - 12:30.
Ráðstefnan verður haldin í salnum Háteig á 4. hæð Grand hótels en ráðstefnunni verður jafnframt streymt í rauntíma og gefur hún 3,5 einingar í endurmenntun, 2,5 í flokknum reikningsskil og eina í flokknum endurskoðun.
Þeir sem velja streymi fá senda slóð daginn fyrir (seinni partinn). Streymið verður opið til og með 17. október 2025.
Ráðstefnugjald er 28.000 kr fyrir félagsmenn og starfsmenn endurskoðunarfyrirtækja en 33.000 kr fyrir aðra. Skráning á vefsíðu FLE til kl. 16 þann 30. september 2025.
Ráðstefnustjóri er Kristján Sigurðsson, endurskoðandi
Sjá nánari dagskrá og um fyrirlesara
8:30 - 9:00 Skráning og kaffisopi
Setning ráðstefnu
Kristrún Helga Ingólfsdóttir, endurskoðandi og formaður FLE
Glögg mynd í reikningsskilum
Halldór Ingi Pálsson, umsjónarmaður ársreikningaskrár ríkisskattstjóra
Lagaumhverfi endurskoðenda og æskilegar breytingar
Margret G. Flóvenz, endurskoðandi
Lagaumhverfi endurskoðenda, umræður
10:05 - 10:20 Kaffihlé
Lagaumhverfi endurskoðenda, niðurstöður ræddar
IFRS 18 - Möguleg áhrif á rekstrarreikning
Jóhann I. C. Solomon, endurskoðandi og ráðgjafi hjá Reikningsskilaráðgjöf ehf.
Gervigreind í reikningsskilum
Hanna Kristín Skaftadóttir, doktorsnemi
11:45 - 11:55 Kaffihlé
Áskoranir í reikningsskilum hjá alþjóðlegu fyrirtæki
Heimir Þorsteinsson, endurskoðandi og framkvæmdastjóri á fjármálasviði Alvotech
12:30 Ráðstefnulok
