Reikningsskila- og fjármáladagur
Reikningsskila- og fjármáladagur FLE verður haldinn fimmtudaginn 8. október kl. 9:00 - 12:30 í salnum Háteig (4. hæð) á Grand hótel.
Þeir sem velja streymi fá senda slóð daginn fyrir (seinni partinn). Streymið verður opið til og með 31. október 2026.
Ráðstefnugjald er 28.000 kr fyrir félagsmenn FLE og starfsmenn endurskoðunarfyrirtækja en 39.000 kr fyrir aðra. Ráðstefnan er opin öllum þeim sem áhuga hafa. Skráning fer fram á vefsíðu FLE til kl. 16 þann 6. október 2026.
Ráðstefnan gefur 3,5 einingar í endurmenntun í flokknum reikningsskil og fjármál.
Ráðstefnustjóri er Jóhann Andri Kristjánsson, endurskoðandi og meðlimur í reikningsskilanefnd FLE.
Sjá nánari dagskrá og um fyrirlesara
8:30 - 9:00 Skráning og kaffisopi
9:00 Setning ráðstefnu
Sara Henný H. Arnbjörnsdóttir, endurskoðandi og varaformaður FLE
Staða og horfur í efnahagsmálum og áskoranir fram undan
Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabanka Íslands
Sjónarhorn einkafjárfestis
Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur
10:00 - 10:10 Kaffihlé
Hvað er að íslenska hlutabréfamarkaðnum?
Alexander Jensen Hjálmarsson, eigandi Akkurs
Umræður í sal og pallborð
Margret G. Flóvenz endurskoðandi stýrir pallborði með fyrirlesurum
11:10 - 11:30 Kaffihlé
Af borði reikningsskilaráðs
Signý Magnúsdóttir, endurskoðandi hjá Deloitte
Æskilegar breytingar á lögum um ársreikninga
Unnar Friðrik Pálsson, endurskoðandi og framkvæmdastjóri FLE
12:30 Ráðstefnulok
