Tekjur og eiginfjárgerningar
Teams námskeið verður haldið föstudaginn 12. desember á milli kl. 9-11. Námskeiðið verður tekið upp og verður hægt að horfa á upptökuna í hálfan mánuð eftir að því lýkur, en til þess þarf að skrá sig.
Námskeiðið er tvískipt. Í fyrri hluta verður farið yfir helstu reglur um færslu tekna af sölu á vörum og þjónustu en í seinni hluta yfir helstu reglur sem segja til um hvenær félög mega flokka samninga sem eigið fé. Farið verður yfir reglur laga nr. 3/2006 um ársreikninga og alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS 15 og IAS 32) sem gilda um þessi tvö viðfangsefni og dæmi tekin fyrir.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Jóhann I. C. Solomon, endurskoðandi og ráðgjafi hjá Reikningsskilaráðgjöf ehf. Áður starfaði Jóhann hjá KPMG frá árinu 1999. Hann hefur víðtæka þekkingu og reynslu á sviði alþjóðlegra reikningsskilastaðla.
Námskeiðið gefur tvær endurmenntunareiningar í flokknum reikningsskil og fjármál.
Verðið er 16.000 kr. fyrir félagsmenn FLE og starfsmenn endurskoðunarstofa en 20.000 kr. fyrir aðra.
