Verðmætasköpun - inngangur

Teams námskeið verður haldið miðvikudaginn 22. apríl á milli kl. 9-11. Námskeiðið verður tekið upp og verður hægt að horfa á upptökuna í hálfan mánuð eftir að því lýkur, en til þess þarf að skrá sig.

SKRÁ MIG HÉR!

Á námskeiðinu mun Már Wolfgang Mixa, dósent í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, fjalla um grunnatriði varðandi verðmætasköpun fyrirtækja. Farið er yfir hvernig fjármagnsskipan hefur áhrif á hagnað fyrirtækja með tilliti til vaxtakostnaðar og ávöxtunarkröfu sem gerð er til fyrirtækja sem og hvaða atriði eru mikilvægust þegar kemur að arðsemi og væntum vexti.

Már hefur kennt fjármál í yfir áratug í Háskóla Íslands, Opna háskólanum og Háskólanum í Reykjavík og situr einnig í stjórn Almenna-Lífsverks. Hann lauk doktorsnámi í viðskiptafræði árið 2016 frá Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig fengið löggildingu sem verðbréfamiðlari í Bandaríkjunum og Íslandi.

Már starfaði hjá fjármálafyrirtækjum í 15 ár við miðlun verðbréfa og gjaldeyris, lausafjárstýringu, eigin viðskipti innlendra og erlendra hlutabréfa og skuldabréfa, eignastýringu, uppbyggingu verðbréfasjóða og lífeyrissparnaðar og sem yfirmaður verðbréfadeildar og verðbréfafyrirtækis.

Námskeiðið gefur tvær endurmenntunareiningar í flokknum reikningsskil og fjármál.

Verðið er 16.000 kr. fyrir félagsmenn FLE og starfsmenn endurskoðunarstofa en 20.000 kr. fyrir aðra.