Virðisaukaskattur - helstu álitaefni
Síðasta Teams-námskeið okkar fyrir sumarfrí verður mánudaginn 8. júní frá 9:00 – 11:00. Á námskeiðinu mun Tina Paic frá KPMG fara yfir helstu álitaefni í virðisaukaskatti með áherslu á praktíska nálgun. Fjallað verður um algeng viðfangsefni hjá bæði einstaklingum og lögaðilum, ásamt því að farið verður yfir dæmi úr daglegri ráðgjöf. Sérstök áhersla verður lögð á að skýra flókin atriði á aðgengilegan hátt og tengja reglurnar við raunveruleg verkefni.
Tina Paic er sérfræðingur í virðisaukaskatti hjá KPMG Law og hefur starfað þar frá árinu 2022. Áður starfaði hún hjá Skattinum sem sérfræðingur í virðisaukaskatti, auk þess að hafa kennt tölfræði við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Tina hefur víðtæka reynslu af ráðgjöf í virðisaukaskatti fyrir bæði einstaklinga og lögaðila og hefur jafnframt aðstoðað erlenda aðila í tengslum við skattamál hér á landi.
Hún er með MA gráðu í skattarétti og reikningsskilum og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Námskeiðið gefur 2 endurmenntunareiningar í flokknum skatta- og félagaréttur.
Verð: 16.000 kr. fyrir félagsmenn og starfsmenn á endurskoðunarstofum en 20.000 kr. fyrir aðra.
Námskeiðið verður tekið upp og upptaka aðgengileg þátttakendum í 30 daga eftir að því lýkur.
