Yfirferð löggildingarprófa frá 2024

FLE í samstarfi við prófnefnd um löggildingarpróf munu standa fyrir námskeiði þar sem prófnefnd fer yfir niðurstöður síðasta löggildingarprófs sem haldið var 2024. Námskeiðið verður haldið 9. september á Grand hóteli kl. 12:30-17:30. Athugið að námskeiðið er ekki aðgengilegt í streymi.

SKRÁ MIG HÉR!

Fjallað verður um prófið samkvæmt reglugerð og úrlausn þess. Námskeiðið er fyrir alla en þó sérstaklega nema í endurskoðun einkum fyrir þá sem hyggjast þreyta prófin í haust. Endurskoðendur eru að sjálfsögðu líka velkomnir. Prófgerðarmenn fara yfir og skýra lausnir á löggildingarprófinu sem haldið var haustið 2024. Próf undanfarinna ára eru aðgengileg hér á vef FLE.

Með vísan til reglugerðar um endurmenntun endurskoðenda gefur námskeiðið 5 endurmenntunareiningar sem skiptast þannig: skatta- og félagaréttur 1 eining, endurskoðun 2,5 einingar, reikningsskil 1,5 einingar. Þátttökukostnaður er 40.000 fyrir félagsmenn en 50.000 fyrir aðra.

Leiðbeinendur: Sæmundur Valdimarsson, endurskoðandi, Margret G. Flóvenz, endurskoðandi, Jóhanna Áskels Jónsdóttir, lögfræðingur, Bryndís Guðjónsdóttir, endurskoðandi, Steingrímur Sigfússon, endurskoðandi og Helgi Einar Karlsson, endurskoðandi.