Yfirferð yfir löggildingarprófin síðustu

FLE í samstarfi við prófnefnd um löggildingarpróf stendur fyrir námskeiði þar sem prófnefnd fer yfir niðurstöður síðasta löggildingarprófs sem haldið var í október 2018. Námskeiðið verður haldið 3. september á Grand hóteli kl. 12:30-17:30. SKRÁ MIG HÉR. Fjallað verður um prófið samkvæmt reglugerð og úrlausn þess. Námskeiðið er fyrir alla en þó sérstaklega nema í endurskoðun einkum fyrir þá sem hyggjast þreyta prófið í haust. Endurskoðendur eru að sjálfsögðu líka velkomnir. Prófgerðarmenn fara yfir og skýra lausnir á löggildingarprófinu sem haldið var 2018. Próf undanfarinna ára eru aðgengileg hér á vef FLE

Með vísan til reglugerðar um endurmenntun endurskoðenda gefur námskeiðið 5 endurmenntunareiningar sem skiptast þannig: skatta- og félagaréttur 1 eining, endurskoðun 2,5 einingar, reikningsskil 1,5 einingar. Þátttökukostnaður er 26.000 fyrir félagsmenn en 36.000 fyrir aðra. Hér má nálgast námskeiðslýsinguna. 

Prófeiningar frá prófinu 2018

 

Leiðbeinendur:

Unnar Friðrik Pálsson, endurskoðandi        
Sigrún Guðmundsdóttir, endurskoðandi
Símon Þór Jónsson, lögfræðingur
Hólmgrímur Bjarnason, endurskoðandi
Steingrímur Sigfússon, endurskoðandi
Herbert Baldursson, endurskoðandi