Spjallstofur fyrir nema verða 30. sept., 3. okt og 5. okt

Spjallstofur FLE fyrir nema í endurskoðun eru eingöngu ætlaðar nemum sem eru félagsmenn í FLE og eru þeim að kostnaðarlausu. Þær verða haldnar í húsnæði FLE, Suðurlandsbraut 6, 5. hæð kl.9:00 – 11:00 og þarf að tilkynna mætingu hér. Fulltrúar skattanefndar, reikningsskilanefndar og endurskoðunarnefndar FLE munu sitja fyrir svörum. Gefst nemum kostur á að spyrja um ákveðin atriði og verður kallað eftir spurningum frá þátttakendum þegar líður nær spjallstofunum.

•Spjallstofa endurskoðun 30.09.2016
•Spjallstofa skattamál 03.10.2016 - hjá PwC í Skógarhlíð - ath. breytt dag- og staðsetning.
•Spjallstofa reikningsskil 05.10.2016