Barátta gegn spillingu

Innanríkisráðuneytið vill vekja athygli á svæði á vef ráðuneytisins um verkefni þess vegna baráttu gegn spillingu. Þar er m.a. að finna upplýsingar um starfshóp á vegum innanríkisráðherra um eftirfylgni vegna innleiðingar á alþjóðlegum samningum gegn spillingu og mútum auk umfjöllunar eða tilvísana til alþjóðlegra samninga á þessu sviði. Jafnframt er að finna á svæðinu tengla á vefsíður frjálsra félagasamtaka, siðareglur í íslenskri stjórnsýslu og fleira.