Fyrsta fréttabréf FLE komið út

Fyrsta fréttabréf FLE er komið út á rafrænu formi og hefur verið sent í tölvupósti til allra félagsmanna. Það eru tæp 4 ár síðan fréttabréf voru send út frá skrifstofu FLE í formi FLE mola, sem gefnir voru út ársfjórðungslega. Stefnt er að því að gefa hin nýju fréttabréf FLE út mánaðarlega eða oftar eftir efni og ástæðum. Hlutverk fréttabréfsins er að vekja athygli á því sem er áhugavert og nýlegt á vef FLE, eins og fréttir, greinaskrif, viðburðir, tilkynningar og margt fleira.

Hér má finna þau fréttabréf sem hafa komið út.